Fara í efni

Útboðsvefur.is

Utbodsvefur.is sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða sbr. 55. gr. laga um opinber innkaup.

Öll innkaup opinberra aðila á vörum, þjónustu og verkum yfir innlendum og erlendum viðmið­unar­fjárhæðum skulu auglýst opinberlega á útboðsvefnum.

Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Undir það flokkast innkaup ríkis, sveitarfélaga og veitufyrirtækja þegar fjárhæðir innkaupa eru yfir innlendum og erlendum útboðsmörkum.

Á útboðsvefnum geta opinberir aðilar einnig auglýst innkaup undir viðmiðunarmörkum til að tryggja gegnsæi.

Hægt er að gerast áskrifandi að tilkynningum um nýjar auglýsingar um útboð. 

Uppfært 24. október 2022