Tilkynning til aðila að rammasamningakerfi ríkisins
Flokkur | Samningslok dags: | Nýr samningur fyrirhugaður |
---|---|---|
RK 14.21 Endurskoðun | 30.09.2017 | Febrúar 2018 |
RK 04.01 Húsgögn | 30.11.2017 | Mars 2018 |
RK 11.11 Raftæki | 30.11.2017 | Mars 2018 |
RK 14.10 Túlka- og þýðingaþjónusta | 03.12.2017 | Mars 2018 |
RK 05.05 Eldsneyti - ökutæki og vélar | 31.12.2017 | Janúar 2018 |
RK 14.26 Umhv.-, skipul.- og byggingamál | 31.12.2017 | Mars 2018 |
Ríkiskaup biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta rof á samningum kann að hafa í för með sér fyrir aðila að rammasamningskerfinu og minna á eftirfarandi:
- Ný rammasamningsútboð eru ýmist í auglýsingu, úrvinnslu eða langt á veg komin og munu Ríkiskaup tilkynna aðilum um leið og nýir samningar taka gildi.
Yfirlit allra rammasamninga
- Ef samningslaust verður áður en nýr samningur kemst á er mikilvægt að huga að því að innkaup stofnana á viðkomandi vöru og/eða þjónustu yfir innlendum viðmiðunarmörkum eða yfir viðmiðunarmörkum á EES-svæðinu eru útboðsskyld. Við hjá Ríkskaupum erum að sjálfsögðu reiðubúin að aðstoða og veita ráðgjöf.
- Séu innkaup undir viðmiðunarmörkum um útboðsskyldu skal fara eftir 24. gr. (Opnast í nýjum vafraglugga) laga um opinber innkaup en þar segir: Við innkaup undir þeim viðmiðunarfjárhæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 23. gr. skal kaupandi ávallt gæta hagkvæmni og gera samanburð meðal sem flestra fyrirtækja. Slíkur samanburður skal jafnan gerður með rafrænum aðferðum. Við þessi innkaup skal gæta að samkeppni og virða jafnræðisreglu 15. gr., svo og ákvæði 49. gr. um tæknilýsingar. Þegar keypt er vara eða þjónusta undir viðmiðunarmörkum skal því, eins og þarna kemur fram, kanna kjör hjá mögulegum bjóðendum eins og kostur er með formlegri verðfyrirspurn. Ríkisendurskoðun og Ríkiskaup hafa tekið saman (PDF skjal) sérstakt eyðublað til að halda utan um slíkar verðfyrirspurnir. Kaupendur eru hvattir til þess að kynna sér eyðublaðið og nota það þegar kannað er verð á vöru og þjónustu undir viðmiðunarmörkum.
Eftirfarandi rammasamningar eru í gildi ásamt samningum um ábyrgðartryggingar ökutækja og flugsæti innanlands.
RK 03 02 Síma- og fjarskiptaþjónusta RK 02 02 Prentun RK 09 03 Hreinlætisefni og pappír RK 15 01 Starfsmannafatnaður RK 07 06 Borðbúnaður og eldhúsáhöld RK 14 23 Rekstrarráðgjöf RK 03 06 Hýsing og rekstrarþjónusta RK 08 03 Kjöt og fiskur RK 08 02 Matvæli RK 10 01 Plastvörur o.fl. RK 06 02 Vöruflutningar innanlands RK 14 25 Öryggisþjónusta RK 05 07 Raforka RK 17 01 Þjónusta verktaka RK 05 06 Eldsneyti- skip og flugvélar RK 09 02 Persónulegt hreinlæti, Bleiur, undirlegg og dömubindi RK 09 07 Microsoft hugbúnaðarleyfi RK 05 02 Leigubílaakstur RK 02 03 Ljósritunarpappír RK 03 05 Netbúnaður RK 05 01 Bílaleigubílar RK 14 28 Flugsæti til og frá Íslandi RK 01 01 UT prentlausnir RK 03 01 UT tölvubúnaður RK 16 05 Úrgangsþjónusta RK 02 01 Skrifstofuvörur